28.1.13

Namminamminammi

Nammidagur er einn uppáhalds dagur vikunnar hjá mér allavega þar sem ég er súkkulaðilover með meiru :)




Nammidagur er ákveðið fyrirbæri sem margir hafa skiptar skoðanir á..
Að honum ætti að sleppa, frekar að borða bara nammi á víð og dreif yfir vikuna, að hann eigi að vera ein allsherjar bomba og svo framvegis.

Í þjálfuninni okkar eru við á þeirri skoðun að hann er alveg jafn mikilvægur og hvað annað, hvort sem maður sé að létta sig eða þyngja sig.

Það er ekki endilega að maður þurfi að missa sig í nammiskálinni, fá sér sveittan burger, pizzu, drekka gos og troða sig út af nammi.
Heldur hækka hitaeiningarnar aðeins upp og leyfa sér þá hluti sem maður er kannski ekki að borða dags daglega.
Fyrir marga er það ekki endilega þetta týpíska nammi heldur bara góður matur, hnetur og eitthvað frábrugðið frá því sem borðað er yfir vikuna.

Það kemur alltaf annar nammidagur eftir þennan :)

Það er mjög mikilvægt á nammidegi sem og alla daga að borða nokkuð hollt og reglulega yfir daginn og svo leyfa sér svo kannski um kvöldið (eina máltíð og eftirrétt) og þá gildir reglan allt er gott í hófi, sem reyndar á við um allt.
Með því að borða reglulega yfir daginn ertu að koma í veg fyrir að þú missir þig í gleðinni og kreivings um kvöldið.

Ástæðan fyrir því að við teljum hann mikilvægan er vegna þess að hann kemur í veg fyrir stöðnun eða réttar sétt sjokkerar líkamann svona út frá vananum, hjálpar manni að halda sönsum og kemur í veg fyrir að maður svindli frekar.

Ég hef sjálf eftir að ég byrjaði að æfa og hugsa um mataræðið tamið mér að halda nammidag heilagan einu sinni í viku og oboy það verður allt svo mikið meira gott og bragðbetra.
Þegar maður er að kötta er stundum erfitt að velja úr hvað manni langar í því þá er maður að fara úr mjög hreinni fæðurútínu vikunnar og úrvalið verður því langtum meira.

Eftir að ég hef verið að keppa svona mikið hef ég líka einhvern vegin lært að meta mat á nýjan hátt og fyrir mér er eitthvað sem var bara venjulegur heimilismatur orðið að dýrindismáltíð og vil ég oft bara MATmikið á nammidegi.
Það er líka svo gaman að gera eitthvað skemmtilegt úr deginum og t.d. að fara út að borða, fá sér smá vín með matnum eða gera eitthvað skemmtilegt.

Um helgina eldaði ég ásamt systrum mínum og kæró dýrindis spaghetti og sá miðjusystirinn um gúrmei gott hvítlauksbrauð homemade með..
Græja uppskrift hér að neðan


SPAGHETTI UPPSKRIFT
Kjötið græjað
*Nautahakk steikt á pönnu, kryddað með salt og pipar, chilli og papriku
*Sveppir, paprika og sólþurrkaðir tómatar bætt við
*Sósunni bætt svo út á

Reimarnar græjaðar
*Settar í pott með vatni
*Smá olía sett út á og þær eldaðar meðan kjötið er græjað
set mynd með af sósunni (Hagkaup) og sólþurrkuðu sem ég btw set út á nánast allt sem ég elda luv them (Kostur)  




HVÍTLAUKSBRAUÐ

*Baguette brauð keypt í bakarí
*Smurt með Allioli
*Ostur settur ofan á
*Kryddað með salti og pipar eða hvítlauskryddi


Aðeins og gott omnommm !

ÞANGAÐ TIL NÆST

LUV ALE
<3
22.1.13

Hárið er djásn höfuðsins

Sit hér og bíð spennt meðan ég downloada nýjasta eintakinu af 90210 víjj !
Ákvað að skella niður nokkrum hárpælingum á meðan ég væri að bíða :)

Skrifaði inn færslu hér um daginn og spurði í endan hvað ÞÚ lesandi kær værir til að lesa meira af, það voru ekki margir sem kommentuðu svo það væri virkilega gaman að fá fleiri ábendingar.

Katrín verslaði eitthverja bók sem ég gluggaði í áðan sem fjallaði meðal annars um hvaða vítamín gerðu gott fyrir hárið (gæti bráðum gefið hár í kollugerð fer svo úr hárum) og þá las ég þessa setningu sem ég setti í headerinn á blogginu, fannst hún meika nokkuð sens.

Annars er ég mjög vanaföst manneskja og sjaldan sem ég þori að breyta til að vananum.. 

Allar "flippaðar" breytingar þarf ég að velta vel og lengi fyrir mér áður en ég læt þær virkilega verða af raunveruleika.
Þegar ég hef svo loksins velt þessu nógu lengi fyrir mér og tekið ákvörðun, þyrfti hluturinn helst að hafa gerst í gær hehe..
Það er sennilega vegna þess að ég er vog.

Við fáum oft þessi tímabil sem maður er bara komin með nóg og langar að breyta til.
Ég er akkúrat að upplifa það núna.
Er búin að hugsa lengi og leita vel af þeim hárlit sem mig langar í og það er slegið eftir mikla rannsóknargerð á Pinterest !


IN LUV <3

Hversu lengi ég næ að halda mér svona er samt stóra spurningin.
Einhvern vegin sækjist maður alltaf í elsku glókollinn haha..
Ég hef nú samt ekki gert neinar gífurlegar breytingar í gegnum árin.

Einu sinni klippt mig við axlirnar í 7.bekk, var voða fínt daginn sem ég klippti það en daginn eftir fór ég að sofa með ekkan í hálsinum eftir að hafa grenjað svo mikið og séð eftir þessu.
Ég gleymi nú ekki þegar ég setti tvo svarta lokka aftan í hárið þegar Rockstar Supernova æðið stóð var í algleymingi, svo skjannahvítt hár og topp á því tímabili sem Lady Gaga var að vera vinsæl og að lokum semí dökkt hár einhvern tíman eftir það.. rosalegar breytingar alltaf hreint !

Systir mín er akkúrat að fara lita sig dökkhærða í vikunni og ég hef sjaldan verið jafn spennt að sjá hárið á einhverjum öðrum, þar sem þetta litla krútt er algjör ljóska inn við beinið.

Annars af því við erum að tala um hár þá nefndi ég í færslu um daginn að mig langaði svo að prufa shampó og næringu frá Morrocan Oil og nýjustu línunni frá Bed Head.




Báðar eru algjör snilld, þetta bleika hreinsar ekkert smá vel hárið meðan Moroccan Oil veitir því mjög góðan raka.
Finnst gott að hafa til skiptana því hárið getur verið svo mismunandi eftir dögum.

Annars er ég hætt að röfla um hár og ætlaði að benda á að ég er að taka til í fataskápunum mínum, þar leynast hlutir sem ég t.d. aldrei notað og er ég með
OPIÐ ALBÚM Á FACEBOOK :)

Þangað til næst

LUV ALE :*

19.1.13

Smá Boston og stelpudóteri

Hver man ekki eftir þessu krúttlega lagi?!?

Boston - Augstana <3


Pantaði mér miða til Boston um daginn á hraðtilboði og þetta lag kemur alltaf í huga minn þegar ég hugsa um Boston haha..

Við systurnar, trillurnar þrjár, ætlum að fara þangað í byrjun apríl.. ó elsku Bandaríkin, þvílík gleði !



Við þrjár í Boston í apríl :)


Millilenti þar eitt sinn á leiðinni út og á leiðinni heim þegar ég var að fara keppa á Arnold USA og so far so good.
Ég er líka algjört nörd hvað utanlandsferðir varðar og er að sjálfsögðu búin að googla allar búðir og vegalengdir því ekki ætla ég að sitja eirðarlaus upp á hóteli.


Það skemmir svo ekki að ein mest gúrm matvörubúð sem ég veit um er bara 5 mín frá hótelinu og ég er að sjálfsögðu búin að finna Cheesecake Factory þar og get ekki beðið eftir að panta mér eitt stk Hershey's köku, algjör djöfull þessi kaka hún er svo góð.


Hér er kvikindið í allri sinni dýrð... já ég elska súkkulaði !

Svo er ég líka búin að vinna heimavinnuna og skoða allar búðir á netinu og finna eitthvað fínt og fallegt sem ég læt mig dreyma um.. langar í svo mikið í MAC og Sephora að ég kem því ekki fyrir hér í blogginu því það væri efni í mastersritgerð.
En það eru líka svona basic hlutir sem fást á engan pening þar og alltaf gott að eiga til á lager.

Hér eru nokkrir slíkir hlutir.



By far besti eyeliner sem ég hef prufað til að hafa á ferðinni.
Stila liquid eyeliner.


Þessi er einn af uppáhalds, kostar um 4000 kr heima, en um 1300 kr í USA



Aðeins of góðir ilmir til af þessum !


Finnst þessi líka algjör snilld þegar ég vill fá aðeins meiri maskara á hárin en vanalega, einn mest djúsí maskarabursti sem ég hef séð.


Maður á aldrei nóg af Vicotrias secret nærum.


Elska matta steinefnapúðrið.




Smá uppáhölds nömm líka sem fást ekki hér heima.


Það eru svo örfáir hlutir sem gripið hafa augu mín líka:


Finnst þessi litur af disco alveg mega nettur, svona djúprauður


Ferðaburstasett þar sem ég bý stundum í íþróttatöskunni minni og að sjálfsögðu bleikt.


Gullbleikt Michael Kors úr.. I'm in love !


NÓG komið af mínum elsku dagdraumum, þegar maður byrjar er erfitt að hætta!

Ég er stanslaust að setja mér ný markmið og var eitt af þeim að versla mér ekki neitt nema nauðsynjar fram að ferðinni en OOPS !

Nýjasta naglalakk línan frá OPI og Mariah Carey sem ég bloggaði um daginn er mætt í Hagkaup og ég átti erfitt með að hemja mig.

Gaf sjálfri mér tvö í tilefni dagsins


The Impossible sem er með svona sand áferð sem er nýjasta nýtt og A Butterfly moment sem er sjúkur nude litur með sanseringu.



og mig langaði líka í bleika glimmerið í línunni :(

Eitt sem ég var að spá.. smá könnun, hvað finnst þér lesandi góður skemmtilegast að lesa um hér á blogginu mínu og væri eitthvað sem þú værir til í að lesa meira af? :)

Þangað til næst
LUV ALE :*


12.1.13

what doesn't kill you makes you stronger

Yfirleitt þegar ég sest niður að skrifa færslu er ég nokkurn vegin búin að fara fram og til baka með það í höfðinu hvað mig langar að skrifa niður hverju sinni.
En svo fer hugurinn af stað og ég á erfitt með mig, byrja að skrifa um einn hlut og veð yfir úr einu í annað hehe...

En þannig er það nú bara, þegar maður fer í svona brainstorming fíling er stundum erfitt að hætta.
Stundum er ég svo æst að þegar ég les yfir bloggið daginn eftir skammast ég mín fyrir stafesetningarvillurnar því ég tek ekki einu sinni eftir þeim sjálf á þeim tímapunkti sem ég skrifa hana, þrátt fyrir að lesa bloggið yfir fyrir birtingu og ég sem hef yfirleitt verið ágætis stafsetningarlögga.

Það sem ég spái líka áður en ég byrja skrifa er hvort það sem ég er að skrifa um sé eitthvað sem aðrir vilji lesa um.
Oft eru þau bara um ekki neitt, eitthverjar hugmyndir, það sem ég hef verið að spá og svo hef ég einnig skrifað færslur sem eru persónulegri en aðrar og má segja að þær sé erfiðast að skrifa.

Í dag var ég að flétta yfir albúm í tölvunni með myndum frá Arnold Classic Europe, þar sem ég keppti á síðastliðin október mánuð.
Það fékk mig til að velta tvennu fyrir mér.

Það fyrsta sem ég er búin að hugsa síðan ég skoðaði þær áðan er að ég hef vitað síðan þá að þetta hefur verið mitt besta form hingað til, en skömmu eftir að ég keppti fannst mér ég samt ekkert í sérstöku formi þannig séð.
Þegar ég lít á þessar myndir núna er ég eiginlega bara í sjokki yfir forminu og hversu gott það var.
Það form er samt sem áður eitthvað sem mig langar til að toppa :)

Já ég efast líka um sjálfa mig líkt og aðrir þrátt fyrir að stíga upp á svið hálfnakin og læt dæma mig, eins fáranlega og það hljómar.

Sem fékk mig til að hugsa að öðru sem hefur verið mér hugfast síðan ég byrjaði og tengist því akkúrat að standa upp á sviði og láta dæma sig.

Það hefur mikil umræða verið á netinu útaf myndum sem birtust á vef Nutramino núna eftir seinasta mót og var birt grein um það núna síðast á vísi.
Ótrúlega leiðinlegt hvernig fólk er að kommenta á myndirnar og það fólk á öllum aldri, að  þeir sem eru á myndunum séu ógeðslegir, búnir að skemma sig og svo framvegis.

Sem betur fer er smekkur manna misjafn og því erum við nú öll mismunandi eins og við erum mörg.
Skil ég vel að þetta er kannski ekki lífstíll sem allir væru tilbúnir að temja sér líkt og að fyrir venjulega manneskju sé frekar óeðlilegt að sjá mikið köttaða manneskju en öllu má nú öfgera.

Ég man þegar ég labbaði inn til Katrínar og hún lagði fyrir mig nokkrar grunnreglur.
Meðal annars að ég þyrfti að vera viðbúin gagnrýni, bæði frá fólki í kringum mig og ókunnugum.
Það er með fitness eins og allt annað að um leið og maður er orðin eitthvað áberandi eða vekur eftirtekt, eins og fólk sem er að keppa hálfnakið gerir þá verða alltaf til einhverjar sögur.

Það sem ég hef ekki heyrt um mig, stundum komandi frá fólki sem ég hef ekki einu sinni heilsað og hvernig þeim detti í hug sumar af þessum sögum um mig fær mig til að verða orðlaus.
En svona er það :)

Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt á hverjum degi sem er alveg hreint ótrúlegt, það sem ég hef líka lært af þessu öllu saman er ómetanlegt og alveg efni í heila færslu :)



Leyfi einu öðru kvóti að fljóta hér með, þrátt fyrir að það minni mig á lagið hennar Kelly Clarkson sem er ekki sérstaklega í uppáhaldi hehe


Mynd sem er ein af uppáhalds <3
Þessi manneskja hefur svo sannarlega kennt mér margt síðustu 2 árin.


LUV ALE :*
7.1.13

Vika af nýju ári

2013 er hafið og þar er ekkert nema gleði :)


Hefur lítið á daga mína drifið annað en vinna, ræktast og svoleiðis gaman.
Janúar er jú þekktur fyrir að vera sá mánuður sem fólk leggur markmið fyrir komandi ár.
Það að rækta sál og líkama yfirleitt eitt af þeim svo það er nóg að gera hjá okkur.
Það eru líka svo spennandi hlutir framunan að ég sit bara hér með bros á vör.

Ég akkúrat elska að setja mér markmið og er stöðugt að setja markmið fyrir sjálfa mig sem ég skrifa niður í dagbókina mína til að minna mig á.
Elska líka að fletta yfir kvóts.. er kvótanörd !



Við hjá Betri Árangri störtuðum þakkarleik á facebook síðunni okkar núna um daginn og viðtökurnar hafa verið hreint út sagt magnaðar og ekkert smá gaman að lesa markmið hjá hverri og einni.
Munum draga út í hverjum föstudegi í janúar og fær sú heppa mánuð í fjarþjálfun í verðlaun.
Mæli með að kíkja á :)

Það er færsla með nýju myndbandi sem kynnir uppsettningu þjálfunarinnar sem þú kommentar á.


Annars farðaði ég fullt af stelpum fyrir áramótin, ekkert smá gaman hversu mikill áhugi var að koma.
Ætlaði að taka myndir af öllum en hafði ekki tök á því.

Ég var komin með leið á því að hafa alla augnskuggana mína í kaos í körfu og fannst ég þurfa redda því fyrir áramótin til að vera með skipulagið á hreinu og tók málin því í mínar hendur og fór í IKEA.
Fann líka þessar snilldar skúffur og reddaði málunum..


Litla skúffan var á 1490 kr og stærri 1990.

Algjör snilld !

Svo er ég að fara seinna í dag með Rósunni minni sem er að fara gifta sig í sumar að skoða brúðarkjóla er mega spennt að fá að fara í mitt fyrsta brúðkaup.
Hlakka líka ekkert smá til að fá að gæsa hana og ef ég þekki litla nagginn rétt þá verður þetta algjört prinsessu brúðkaup.
Hún ætlar að baka kökuna sjálf, enda ætti hún að opna bakarí með stórri bleikri kitchen aid vél á bakvið.
Svo sendum við hvor annari myndir af brúðkaupsdóti af pinterest reglulega hehe..

Jæja ég er hér alltaf svo miki næturdýr að ég elska að tjilla í tölvunni seint á næturnar með þurrt Cheerios í bolla og blogga

Þangað til næst
LUV ALE :*

1.1.13

Gleðilegt nýtt ár :)

Elsku lesendurnir mínir :)

Mig langar til að þakka innilega fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða.
Finnst ótrúlega gaman að sjá hversu margir skoða síðuna mína á hverjum degi og like-a færslurnar mínar.
Alveg ómetanlegt og semmtilegt 
<3

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ LIÐNA !

Núna er nýtt ár með nýjum og spennandi markmiðum framundan.
Það má segja að árið sem var að líða hafi verið virkilega lærdómsríkt og viðburðarríkt. Þegar ég lít til baka trúi ég varla hversu fljótt það leið yfir.
Það sem ég lærði er eitthvað sem mun nýtast mér alla ævi.

Mun ég því nýta árið vel sem framundan er með það að markmiði sem er mottó okkar í þjálfuninni
að vera besta úgáfan af sjálfri mér, en umfram allt að NJÓTA þess að vera til :)


YKKAR EINLÆG
ALE <3 :*